Ragnhildur er rík

 Í morgun þegar við fórum á fætur sáum við að folald var komið út úr girðingunni, hefur líklega rúllað einhvern veginn undir strengina. Þegar betur var að gáð kom í ljós að hér var á ferðinni nýlega kastaður foli undan Eldingu (Logadóttur)og Helmingi. Frúin á heimilinu stökk út og ætlaði að taka mömmuna í múl og ná þannig folaldinu, en Elding var nú ekki til í að taka þátt í svona veseni, þannig að kerlingin náði folanum og vippaði honum inn á túnið til mömmunnar.

 Nú er spennandi að vita hvaða nafn þessi myndar foli hlýtur, en eigandinn hún Ragnhildur Stefanía fær að sjálfsögðu að finna út úr því.

 

1 Comment
  1. Hæhæ… hvað er þetta ? einmitt þegar ég fer þá þarf hún að skjóta honum útúr sér 😀 neei bara grín hann er algjört yndi og öruglega ennþá flottari með eigin augum 😀
    ég er ekki alveg búinn að áhveða nafn en það verður eitthvað skylt Eldingu 😀 en allavegana ættla ég ekki að skýra hann fyrr en ég hef nú séð hann með eigin augum 😀

    Hlakka til að sjá fleiri myndir af honum og hinum folöldunum 😀
    kær kveðja : Ragnhildur 😀

Comments are closed.