Það kom sér vel að eiga pláss í hesthúsinu fyrir allt stóðið þegar öskufjúkið náði Kílhrauni um kl. 16 í gær.
Eftir því sem leið á kvöldið jókst öskufallið til mikilla muna og afréðum við að taka alla hestana inn í skjól fyrir því. Með hjálp góðra vina náðum við að koma folaldshryssum og öðrum útigangi inn án teljandi vandræða.
Nú eru þau í góðu yfirlæti með góða tuggu, hreint vatn og í skjóli fyrir öskufallinu. Látum daginn líða og sjáum til hversu lengi við höfum þau inni.
heheh , hann er snillingur 🙂
Já Ragnhildur, Punktur geyspar ógurlega þegar við komum inn í hesthúsið. Ég tók ekki eftir því fyrr en myndin kom á vefinn.
ég verð nú bara að segja að mér þykir myndin góð af hestunum í hesthúsinu ,
er þetta Punktur að geyspa svona fallega fyrir myndavélina ? 🙂
Já það er alltaf gott að hafa nóg pláss þregar svona hamfari vaða yfir mann