Hesthúsið tekur breytingum

Hesthúsið okkar í Kílhrauni hefur tekið miklum breytingum síðustu vikur.

Borðkrókur með útsýni yfir hesthúsið

Á meðan hestapestin hefur gengið yfir hjá okkur hefur Hólmfríður ekki setið auðum höndum. Hún hefur verið ansi iðin við að þrífa hesthúsið, sótthreinsa, mála og bera olíu á harðvið. Við höfum aðeins hjálpað til og eins hafa Ásdís og Gunný lagt hönd á plóginn. Nú er hesthúsið skínandi hreint og nýmálað. Kaffistofan hefur tekið stakkaskiptum Leifur einangraði gólfið, lagði gólfefnið, setti upp vask. Ég og Hólmfríður settum saman eldhúsinnréttingu svo nú er allt fínt og flott. Það verður gott að fá sér kaffi og kakó í pásum.

Þegar reiðtygin og hnakkarnir verða komin á sinn stað verður kaffistofan góður staður til þess að hvíla lúin bein. Nettenging gerir hana síðan að nútíma vinnustað.

Reiðtygin fá sinn sess

Kaffistofan fyrir breytingu. Mynd, Hólmfríður Kristjánsdóttir

Kaffistofa fyrir breytingu. Mynd, Hólmfríður Kristjánsdóttir

Velkomin í kaffi í Kílhrauni.

Á þessum myndum má sjá muninn á stíunum áður en þær voru þrifnar og olíubornar.

Stian áður en Hólmfríður réðst á hana. Mynd Hólmfríður Kristjánsdóttir

Hér er búið að þrífa. Mynd Hólmfríður Kristjánsdóttir

Fyrir lökkun. Mynd Hólmfríður Kristjánsdóttir

Eftir lökkun. Mynd Hólmfríður Kristjándsóttir

3 Comments
  1. Þú ert alltaf velkomin Kristín mín 🙂 Bara flott að sjá muninn stíjunum fyrir og eftir þrif og lökkun 😉

  2. Þessar breytingar eru ótrúlega flottar og gaman verður að komast í hestagírinn aftur með flott hesthús og enn flottari kaffistofu 🙂

Comments are closed.