Birta frá Kílhrauni

Bergur hjá jafnöldru sinni, Birtu frá Kílhrauni. Þeim er vel til vina.

Birta frá Kílhrauni og Bergur Tjörvi, eigandi og jafnaldri, eru góðir vinir. Þegar Bergur fer út í stóðið kemur Birta alltaf til hans og heilsar upp á vin sinn. Henni er þó illa við hundinn okkar.

Birta hefur sérstakan lit sem hefur verið greindur sem korgleirsljós. Hún breytist eftir árstíðum, án þess að vera litförótt, er ljósari á vetrum en sumrum. 

Brátt fara þau að fara saman í útreiðar, þegar bæði verða tilbúin til þess. Það verður gaman að fylgjast með því hvernig vináttan á milli þeirra mun þróast um ókomin ár.