Núna í byrjun febrúar var Askja send til Reykjavíkur og kemur í stað Loka í hesthúsinu þar. Hólmfríður ætlar að vinna með hana fram á vorið með hjálp Sigga Sig. og annarra góðra manna og kvenna. Askja er ansi efnileg hryssa og verður spennandi að fylgjast með framförum hennar á þessu ári.
Hólmfríður var búin að vinna í Loka frá því hestarnir voru teknir inn í byrjun desember í fyrra. Hann er nú kominn í frí og hefur verið settur í útigöngu með hinum í stóðinu okkar.
Katla er líka komin í frí. Hún hafði verið í þjálfun hjá Coru Claas á Selfossi og var það álit hennar að Katla þyrfti lengri tíma til þess að sýna hvað í henni býr. Katla verður eitt af sumarverkefnum Hólmfríðar.
Hólmfríður er síðan að sjálfsögðu með gæðingana sína hjá sér þá Dynjanda og Þokka.