Já það var nú ekki erfitt að finna nafn á fyrsta folaldið. Hvellhetta ber nafn með rentu, er nánast alltaf á fullri ferð um allt tún með mömmu sína í eftirdragi. Þess á milli leggur hún sig og drekkur duglega. Eins og glögglega má sjá hætti hún snarlega við að vera móálótt og er nú orðin bleikálótt.
1 Comment
Comments are closed.
Hæ hó.
Hún er nú bara bjútí þessi dúlla og greinilega forvitin eins og flest ungviði. Þá er bara að bíða eftir fleirum 🙂
Kveðja,
Lilja Ö.